Framúrskarandi tannlækningar

Við erum stolt með það að geta þjónað samfélaginu okkar og leggjum okkur fram við að hafa jákvæð áhrif á munnheilsu sjúklinga okkar.

Settu brosið í fyrsta sæti

Með því að koma til okkar í skoðun getum við hjálpað þér að halda brosinu skínandi.

Velkomin á tannlæknastofuna okkar! Tannlæknar okkar og teymið eru tilbúin að taka á móti þér, sama hvað þarf að gera. Við skiljum hversu mikilvæg munnheilsa er fyrir líkamlega heilsu, sjálfstraust og útlit. Þess vegna leggjum við áherslu á vinalegt og afslappað andrúmsloft, þar sem þér getur liðið vel frá fyrstu stundu.

Afhverju ættir þú að velja DomusDentis

Nýjasta tækni

Við erum með alla nauðsynlega tækni til greiningar og meðferðar: CT-skanni (Orthophos SL), CJ-Optic smásjá og CEREC-kerfi sem gerir kleift að búa til tannkórónur á einum degi.

Enginn falinn kostnaður

Engin falin gjöld. Verðin á vefsíðunni okkar endurspegla raunveruleikann, svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur vegna óvænts kostnaðar í lok meðferðar.

Frábært starfsfólk

Tannlæknar okkar halda stöðugt áfram að bæta sig með því að taka þátt í alþjóðlegum ráðstefnum og námskeiðum til að bæta sig

Hvað seigja viðskiptavinir okkar

Frábær þjónusta. Viðmótið er bara svo yndislegt, fagmennska upp á 100 og þau eru mjög sanngjörn í verði. Mæli eindregið með þeim.
Sigrún R.
Ég skipti um tannlækna vorið 2019 ég var svo heppin að lenda hjá Torfa og Daða get ekki hætt að mæla með þeim frábær þjónusta og mjög sanngjörn verð. Margir ættingjar mínir eru komnir til þeirra takk fyrir mig
Gunnar S.
Mjög góð þjónusta og maður fer með augun með sér heim, semsagt kostar ekki augun úr.
Matthildur E.
Frábær þjónusta, fagleg og fumlaus. Var búin að mikla mikið fyrir mér að fara í implant og eiginlega skammaðist mín að hafa eytt tíma í óþarfa vanlíðan, sem n.b. hvarf þegar ég settist í stólinn hjá þeim Daða og Herborgu. Mæli 100% með þeim
Anna P.
0

Frábærir tannlæknar

0

Ára samanlögð reynsla

0

Ánægðir viðskiptavinir

Scroll to Top